Sæll og blessaður!
Það hefur ekki verið skrifuð færsla hér inná alveg heillengi

Enda erum við hvorug búin að kíkja hingað inn lengi
Annars er allt gott að frétta af okkur, við fílum okkur vel hérna í silfurgötunni! Kolbrún María stækkar vel og er orðin roslega dugleg! Hún er farin að skríða mjög hratt yfir öll gólf, og tætir allt sem hún gætur tætt. Hún er farin að standa líka upp við hluti og þreyfa fyrir sér að labba meðfram hlutum. Hún er komin með 8 tönnslur og á afmæli eftir mánuð

Tíminn er fljótur að líða, ég klára fæðingarorlofið mitt fljótlega, er þó að fara vinna með seinustu mánuðunum á bensó

Pálmar er enn að vinna í ms og er farinn að taka aukavaktir í dyraverðinum á edin

Ég reyni svo að vera dugleg að læra svo ég nái pottþétt að klára stúdentinn í vor, og lítur allt út fyrir að ég nái því

Annars þá kannski reynum við að lífga aftur upp á þessa síðu ef tími gefst til þar sem það er mikið að gerast hjá okkur þessa næstu mánuði

Ég ætla nú að skella mér í kvöldtiltektina, þar sem Kristrún er að koma til mín þar sem Pálmar er að vinna

Takk fyrir lesninguna
Kv Aldís Dröfn